|
Forritunarkeppnin 2012: 3. 4. og 5. sæti í Sheldon Cooper |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Mánudagur, 19. mars 2012 10:06 |
|
Forritunarkeppni framhaldsskólanna 2012 var haldin í Háskólanum í Reykjavík 10. mars. Alls kepptu 44 lið í 3 deildum og var þetta fjölmennasta forritunarkeppnin og því líklega sú harðasta frá upphafi. Liðið Rainmen frá MH skipað þeim Halldóri Bjarna Þórhallssyni, Benedikt Þorgilssyni og Arnari Vilhjálmi Arnarssyni náði 3. sæti í Sheldon Cooper deild og liðið SINEP skipað þeim Bjarti Thorlacius, Elísabetu Jónsdóttur og Villa Thors fylgdi fast á eftir og náði 4. sæti, einnig í Sheldon Cooper deild. Þess má geta að Sheldon Cooper deildin er önnur af tveim deildum keppninnar sem eru fyrir lengra komna. Alls kepptu 19 lið í deildinni.
Liðið Apache frá FAS skipað þeim Agli Eiríkssyni og Reyni Ásgeirssyni náði einnig góðum árangri í Sheldon Cooper deildinni. Það fylgdi MH liðunum fast á eftir og náði 5. sæti. Liðið Afdalamenn frá FSu sem keppti einnig í Sheldon Cooper deildinni háði harða baráttu og hafnaði í 9. sæti.
Liðið 3_3 úr FSu skipað þeim Benedikt Arnari Oddssyni, Karel Fannari Sveinbjörnssyni og Hubert Popiolek hafnaði í 5. sæti af 18 í Howard Wolowitz deildinni (deild þeirra sem hófu forritunarnám síðasta haust). |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 19. mars 2012 10:29 |
|
|
Góður árangur í forritunarkeppninni 2011 |
|
|
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Miðvikudagur, 30. mars 2011 11:06 |
|
„Nemendur Ragnars Brynjólfssonar kennara í FSu náðu góðum árangri í Forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin var laugardaginn 26. mars [2011] í Háskólanum í Reykjavík. Alls voru 30 lið skráð til leiks í keppninni sem fer fram í þremur deildum, Alfa, Beta og Delta. Liðið /* Forritun */, sem var skipað þeim Ragnheiði Guðbrandsdóttur og Sigtryggi Haukssyni úr MH og Garðari Smára Vilhjálmssyni úr FSu, varð í 1. sæti Delta keppninnar. Liðið "The # ones", skipað Bjarti Thorlacius, Arnari Vilhjálmi Arnarssyni úr MH og Sölva Má Benediktssyni úr FSu, varð í 2. sæti Delta keppninnar. Í Delta keppninni voru skráð 21 lið til leiks en líklega voru það eitthvað um 15 lið sem kepptu.
Tilv. í frétt á vef FSu. |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 19. mars 2012 10:15 |
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Þriðjudagur, 09. mars 2010 09:05 |
|
Hin árlega Forritunarkeppni framhaldsskólanna var haldin 27. mars í nýjum húsakynnum Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík. Alls tóku 5 lið þátt í Alpha deild, 7 í Beta deilld og 16 í Delta deild. Forritunarkeppnin er keppni fyrir alla nemendur í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum. Liðið sem sigraði Alpha deildina var skipað Jónatan Óskari Nilssyni áður FSu nú Tækniskólanum, Gabríel Arthúr Péturssyni FSn og Sveini Fannari Kristjánssyni úr Tækniskólanum. Þrjú lið frá FSu og MH (eitt frá hvorum skóla og svo eitt sameinað lið) tóku þátt í Delta deild keppninnar og höfnuðu þau í 5. 10. og 14. sæti. . Þátttaka í keppninni er lærdómsrík og æskilegt er að sem flestir forritunarnemendur taki þátt í keppninni ekki endilega í von um sigur heldur til að dýpka forritunarkunnáttu sína og að vera með. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. apríl 2010 09:17 |
|
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 16:16 |
|
Frá og með haustönn 2010 bætist nýr áfangi við: TÖL123. Efni hans er almenn tölvufræði, saga hennar og þróun til nútímans. Með þessari viðbót opnast möguleiki fyrir nemendur að taka 9 eininga pakka í tölvufræði, alla með 100 númeri. Þeir eru auk TÖL123 TÖL103 (inngangur að forritun) og TÖL113 (gagnasafnsfræði). Með þessari viðbót munu áhugasamir nemendur geta tekið alls 15 einingar í tölvufræði í fjarnámi hjá forrit.net. Nánari upplýsingar um TÖL123 má finna undir „Áfangar í boði“ í aðalvalmyndinni til vinstri. |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 16:24 |
|
Skrifað af: ragnargeir
|
|
Mánudagur, 25. maí 2009 09:28 |
KYNNINGARMYNDBAND UT-konur, félag kvenna í upplýsingatækni, luku nú á vordögum gerð myndbands sem ætlað er að vekja áhuga ungra stúlkna á möguleikum og fjölbreytileika þeirra starfa sem bjóðast innan upplýsingatækninnar og slá á þann útbreidda misskilning að fagið sé bara fyrir stærðfræðiséní eða nörda. Tekin voru viðtöl við konur sem starfa á ólíkum sviðum innan fagsins og og vonast er þannig til að gefa áhugaverða sýn á fagið og þau störf sem í boði eru. Titill myndbandsins er „Upplýsingatækni – Fag án landamæra“. Myndbandið má nálgast á vefsíðu SKY á slóðinni: http://www.sky.is/utkonur-myndband.html. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 27. maí 2009 10:22 |
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |